4 maí 2019Í kvöld er komið að stærsta leik ársins en þá verður leikinn hreinn úrslitaleikur um íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik árið 2019.

KR og ÍR mætast í fimmta leik sínum um titilinn í lokaúrslitum Domino's deildar karla og verður leikið til þrautar að venju, en nú fer fram lokaleikurinn þar sem bæði lið hafa unnið tvo leiki hvort. Það lið sem vinnur í kvöld lyftir bikarnum í kvöld í DHL-höllinni í leikslok og verður krýnt Íslandsmeistari karla 2019.

Leikurinn hefst kl. 20:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport ásamt því sem Domino's Körfuboltakvöld verður með upphitun fyrir leik og uppgjörsþátt eftir leik.

Áhorfendur eru hvattir til að mæta tímanlega til að tryggja sér miða en búast má við húsfylli og að uppselt verði á leikinn.

🏆 ODDALEIKUR UM TITILIN
🍕 Domino's deild karla
🗓 Laugardaginn 4. maí
🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is
🎪 DHL-höllin, Vesturbæ
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport
⏰ 20:00

🏀 2️⃣ KR-ÍR 2️⃣

#korfubolti #dominosdeildin