1 apr. 2019Í kvöld er komið að úrslitastundu í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla þegar tveir oddaleikir fara fram. Fyrri leikur kvöldsins er 5. leikur Tindastóls og Þór Þ. fyrir norðan kl. 18:30 og sá síðari er 5. leikur Njarðvíkur og ÍR í Ljónagryfjunni kl. 20:15. 

Báðir oddaleikir kvöldsins verða sýndir beint á Stöð 2 Sport og Domino' Körfuboltakvöld svo í lok kvölds kl. 22:00 á sínum stað þar sem leikirnir verða gerðir upp.

Það ræðst því hvaða lið mætast í undanúrslitunum í ár eftir leiki kvöldsins en Stjarnan og KR bíða þar og mun Stjarnan alltaf fá þann andstæðing sem hafnaði neðst í deildinni af þeim fjórum liðum sem kemst áfram í undanúrslitin þar sem þeir urðu deildarmeistarar.

❗️ ODDALEIKIR 
🍕 Domino's deild karla
🏆 8-liða úrslit
🗓 Mán. 1. apríl
🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is

⏰ 18:30
🎪 Síkið, Sauðárkróki
🏀 TINDASTÓLL-ÞÓR Þ. 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

⏰ 20:15
🎪 Ljónagryfjan, Njarðvík
🏀 NJARÐVÍK-ÍR 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

➡️ Domino's Körfuboltakvöld kl. 22:00 á sínum stað á Stöð 2 Sport í lok kvölds þar sem leikirnir verða gerðir upp og upphitun fyrir úrslitakeppni kvenna sem hefst á morgun

#korfubolti #dominosdeildin