20 feb. 2019

Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður verður við eftirlit í kvöld í EuroLeague kvenna í Ríga. Um er að ræða leik TTT Riga gegn Sopron Basket og fer leikurinn fram á heimavelli TTT Riga og hefst kl. 19:30 að staðartíma. Bæði lið hafa tryggt sig áfram í 8 liða úrslit keppninnar en sigurvegarinn endar í öðru sæti riðilsins og ætti því að fá léttari andstæðinga í 8 liða úrslitum.

Dómarar leiksins eru þeir Marek Kukelcik frá Slóvakíu, Vladimir Jevtovic frá Serbíu og Alfred Jovovic frá Króatíu.