30 jan. 2019Davíð Tómas Tómasson, einn af okkar FIBA dómurum, er í verkefni í kvöld í Frakklandi. Þá dæmir hann leik í EuroLeague Women í gamla heimabæ Martins Hermannssonar, Charleville-Mézéres, þegar heimastúlkur í FLAMMES CAROLO BASKET mætir liði TTT RIGA frá Lettlandi.

Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með honum í BEINNI á netinu og í lifandi tölfræði hérna á heimasíðu keppninnar. 

Dómari leiksins er Jelena Tomic frá Króatíu og meðdómari ásamt Davíð Tómasi verður Pedro Coelho frá Portúgal.

KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í kvöld.

#korfubolti