23 jan. 2019

Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður er að störfum í Finnlandi í dag. Þar sér hann um eftirlit í leik Kataja Basket gegn BC Avtodor Saratov í Europe Cup. Leikurinn hefst kl. 18:30 að staðrtíma. 

Það hefur verið nóg að gera hjá Rúnari Birgi sem FIBA eftirlitsmaður á þessu tímabili en þetta er sjöunda verkefnið sem hann er í. Hann er greinilega að gera góða hluti.