23 jan. 2019Í dag var dregið í undanúrslitaviðureignir karla og kvenna í Geysisbikarnum 2019 og fór drátturinn fram í Laugardalshöllinni að viðstöddum fulltrúum félaganna og fjölmiðlum. Allir leikir keppninnar sem eftir eru verða í beinni útsendingu á RÚV og RÚV2. 

Eftirtalin lið drógust saman:

Undanúrslit kvenna · Miðvikudaginn 13. febrúar, Laugardalshöllinni

Kl. 17:30 · Breiðablik-Stjarnan · RÚV2
Kl. 20:15 · Valur-Snæfell · RÚV2

Undanúrslit karla · Fimmtudaginn 14. febrúar, Laugardalshöllinni
Kl. 17:30 · Stjarnan-ÍR · RÚV2
Kl. 20:15 · KR-Njarðvík · RÚV2

Miðasala félaganna sem og almenn sala KKÍ hefst svo á morgun á TIX:IS.

Sigurvegarar undanúrslitanna mætast svo í úrslitaleikjunum í Geysisbikarnum á laugardeginum 16. febrúar, úrslitaleikur kvenna kl. 13:30 og úrslitaleikur karla kl. 16:30 og verða báðir leikirnir í beinni á RÚV.

Úrslit yngri flokka hefjast föstudaginn 15. febrúar og verða svo haldið áfram sunnudaginn 17. febrúar einnig í Laugardalshöllinni.
 
#geysisbikarinn #korfubolti