22 jan. 2019Í kvöld fer fram síðasti leikurinn í 8-liða úrslitum Geysisbikarsins þegar Tindastóll og Stjarnan mætast í keppni karla á Sauðárkróki.

Leikurinn hefst kl. 19:30 og verður í beinni á RÚV2. Þar með ræðst hvaða 4 liða karla verða í undanúrslitunum í Laugardalshöllinni 14. febrúar en á morgun miðvikudag verður dregið í undanúrslitin og fer drátturinn fram kl. 12:15 í andyri nýju Laugardalshallarinnar.

Hjá konunum verða í pottinum: Breiðablik, Snæfell, Stjarnan og Valur.
Hjá körlunum verða: ÍR, KR, Njarðvík og svo annaðhvort Tindastóll eða Stjarnan eftir leik kvöldsins.


🚗🚗🚗 GEYSIR BÍLALEIGA 🚗🚗🚗
🏆 Geysibikarinn 2019 
➡️ 8-liða úrslit karla
🗓 Þriðjudaginn 22. janúar
📺 Sýndur beint á RÚV2
⏰ 19:30

🏀 TINDASTÓLL-STJARNAN

Hverjir fara í undanúrslit í Höllinni🎪?

#geysisbikarinn #korfubolti