16 jan. 2019

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni.

Úrskurður nr. 22/2018-2019
Með vísan til ákvæðis c-liðar 1.mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ragnar Halldór Ragnarsson, þjálfari Njarðvík, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvík og Þór Akureyri í 1.d.kvenna í M.fl.kvenna, sem leikinn var 5. janúar 2019.

Úrskurður nr. 23/2018-2019
Með vísan til ákvæðis a-liðar 1.mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gerald Robinson, leikmaður IR, sæta áminningar vegna háttsemi sinnar í leik IR og Stjörnunnar í Íslandsmót M.fl.karla, sem leikinn var 6. janúar 2019.

Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á morgun.