9 jan. 2019

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni.

Agamál nr. 16/2018-2019 
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Guðmundur Jóhann, leikmaður Breiðabliks b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Breiðablik b og Fjarðabyggð í Íslandsmóti KKÍ, mfl. kk, 3. deild, sem leikinn var 8.desember 2018.

Agamál nr. 19/2018-2019
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Vladimir Ivankovic, þjálfari Snæfells, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells og Fjölnis í Íslandsmóti KKÍ, 1. deild mfl. kk., sem leikinn var 13. desember 2018.

Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á morgun.