3 jan. 2019Rúnar Birgir Gíslason, eftirlitsmaður FIBA, verður við störf í Frakklandi í kvöld þegar hann sér til þess að allt fari rétt fram í leik Nantes Reze gegn Energa Torun í EuroCup kvenna en leikurinn fer fram í bænum Reze.

Með Rúnari Birgi verða Atnhonie Sinterniklaas aðaldómari frá Hollandi og Geert Jacobs frá Belgíu og Esperanza Mendoza Holgado frá Spáni sem eru meðdómarar leiksins. 

KKÍ óskar Rúnari Birgi góðs gengis.

Hægt er að fylgjast tölfræði leikja og einum leik í beinni á netinu á heimasíðu mótsins hérna 

#korfubolti