21 des. 2018Domino's körfuboltakvöld á Stöð 2 Sport mun í kvöld vera með sinn árlega jólaþátt og verður bein útsending frá Hard Rock í kvöld þaðan sem þátturinn verður sendur út.

Veitt verða umferðarverðlaun fyrir fyrri hluta Domino's deilda karla og kvenna en deildarkeppnin er hálfnuð hjá körlunum, þar sem 11 af 22 umferðum er lokið, en 13 af 14 umferðum í fyrri hluta kvenna er lokið.

Þar verða leikmenn og þjálfarar heiðraðir og úrvalslið deildanna opinberuð. 

Útsending hefst kl. 22:00 og geta áhugasamir körfuknattleiksaðdáendur keypt sér miða á viðburðinn með inniföldum veitingum hér á Tix:is og verið gestir í sal á meðan þátturinn er sendur út.

Dagskrá kvöldsins:
Húsið opnar:19:00
Hard Rock hlaðborð: 20:00
Tónlist og spjall við sérfræðinga: 20:00-21:30
Jólaþáttur hefst: 22:00
Körfuboltapartý: 00:00

#korfubolti