17 des. 2018Hildur Björg Kjartansdóttir og Martin Hermannsson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2018 af KKÍ. Þetta er í 21. skipti sem valið er tvískipt milli karla og kvenna eða frá árinu 1998.

Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn, starfsmönnum, afreksnefnd og landsliðsþjálfurum allra landsliða KKÍ í verkefnum á árinu 2018.

Hildur Björg og Martin urðu einnig efst í kjörinu í fyrra og eru því að hljóta nafnbótina bæði annað árið í röð og Martin þriðja árið í röð hjá körlunum.

Val á körfuknattleikskonu ársins 2018:

Körfuknattleikskona ársins 2018:
1. Hildur Björg Kjartansdóttir
2. Helena Sverrisdóttir
3. Þóra Kristín Jónsdóttir

 
Aðrar sem fengu atkvæði í stafrófsröð eru:
Berglind Gunnarsdóttir
Guðbjörg Sverrisdóttir
Sara Rún Hinriksdóttir
Thelma Dís Ágústsdóttir


Hildur Björg Kjartansdóttir · Celta de Vigo (Spánn)
Hildur Björg er hlýtur nafnbótina „Körfuknattleikskona ársins” í annað skipti og annað árið í röð. Hildur Björg hóf atvinnuferil sinn í fyrra með CB Leganés á Spáni þar sem hún stóð sig vel og bætti sinn leik. Í haust skipti Hildur Björg yfir til Celta de Vigo og hefur farið vel af stað með liði sínu á Spáni og liðinu gengið vel. Með landsliðinu lék Hildur Björg í undankeppni EM kvenna 2019 þar sem íslenska liðið lék sex leiki frá nóvember 2017. Hildur var ein af lykilleikmönnum landsliðsins þar sem hún var með 14.2 stig og 7.5 fráköst að meðaltali í leikjunum. Með landsliðinu er Hildur Björg orðin ein af lykilleikmönnum liðsins og mun án efa bæta sig meira sem atvinnumaður í körfuknattleik á næstu árum.

Helena Sverrisdóttir · Haukar/CEKK Cegléd/Valur
Helena Sverrisdóttir hefur verið valin „Körfuknattleikskona árins“ 11 sinnum á síðustu 14 árum og er í öðru sæti í kjörinu nú. Helena var lykileikmaður Hauka á síðustu leiktíð og leiddi lið sitt til Íslandsmeistaratitils sl. vor. Í haust hélt hún á ný í atvinnumennsku í Ungverjalandi. Hún tók þá ákvörðun að snúa heim fyrir skömmu og samdi við Val í Domino’s deild kvenna og leikur með þeim það sem eftir lifir tímabili. Með íslenska landsliðinu hefur Helena leikið mjög vel og leiðir liðið í stigum skoruðum, framlagi og teknum fráköstum auk þessa að hún var þriðji stigahæsti leikmaðurinn að meðaltali í undankeppninni sem lauk í nóvember.

Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar
Þóra Kristín Jónsdóttir varð þriðja í kjörinu í ár sem hennar hæðsta sæti í kjörinu til þessa. Hún átti mjög gott tímabili í fyrra þar sem Haukar urðu Íslandsmeistarar um vorið og þar skilaði hún stóru hlutverki sem byrjunarliðsmaður. Þóra Kristín hefur fengið stærra hlutverk að auki með íslenska kvennalandsliðinu og hefur verið byrjunarliðsbakvörður liðsins í undankeppninni sem nú var að ljúka í haust. Hún verður því áfram ein af lykilleikmönnum liðsins á næstu árum.

Val á körfuknattleikskarli ársins 2018:

Körfuknattleikskarl ársins 2018:
1. Martin Hermannsson
2. Haukur Helgi Pálsson
3. Tryggvi Snær Hlinason

 
Aðrir sem fengu atkvæði í stafrófsröð eru:
Hlynur Bæringsson
Jón Arnór Stefánsson
Jón Axel Guðmundsson
Kári Jónsson


Martin Hermannsson · Alba Berlin (Þýskaland)
Martin er orðin einn af betri leikmönnum íslenska landsliðsins á sínu 24. aldursári og hefur sýnt framfarir í leik sínum undanfarin ár á undan. Þetta er þriðja árið sem Martin hlýtur nafnbótina körfuknattleikskarl ársins og einnig þriðja árið í röð. Martin lék á síðsta tímabili með Châlons-Reims í efstu deild í Frakklandi, þar sem hann stóð sig frábærlega og það vel að stórlið Alba Berlínar samdi við hann fyrir núverandi tímabil. Þar hefur Martin verið lykilleikmaður leik eftir leik og byrjað vel. Martin er einn af framtíðarleikmönnum íslenska landsliðsins. Í undankeppninni HM lék Martin vel og alla sex leiki liðsins. Þar var hann stigahæstur í liðinu með 21.5 stig að meðaltali, stoðsendingahæstur með 3.7 stoðsendingar í leik og einnig framlagshæstur með 20.0 stig í leik. Við tók undankeppni EuroBasket 2021 og þar hélt Martin uppteknum hætti í fyrri leik liðsins af tveim og sýndi hversu mikilvægur hann er fyrir íslenska landsliðið.

Haukur Helgi Pálsson · Nanterre 92 (Frakkland)
Haukur Helgi leikur sitt annað tímabil í efstu deild í Frakklandi í vetur. Hann átti gott tímabil í fyrra með Cholet í sömu deild og færði sig því um set í Frakklandi. Þar leikur hann mikilvægt hlutverk í sínu liði og hefur leikið vel það sem af er tímabili. Með landsliðinu átti Haukur Helgi að venju flotta leiki í undankeppni HM og verður einn mikilvægasti leikmaður þess á komandi árum. 

Tryggvi Snær Hlinason · Monbus Obradorio (Spánn)
Tryggvi Snær hefur tekið miklum framförum ár eftir ár á síðastliðinum árum og leikur nú sitt annað ár sem atvinnumaður í efstu deild á Spáni, sem talin er sú besta í Evrópu en hann er samningsbundinn Valencia og er á láni hjá Monbus Obradorio en þar hefur hann fengið meiri spilatíma og stærra hlutverk í vetur og hefur því bætt sig um leið. Tryggvi Snær er framtíðarleikmaður af ungu kynslóðinni með landsliðinu en Tryggvi er fæddur árið 1997.


Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 
1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir
1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð
2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir
2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir
2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir
2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir
2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2011: Jakob Örn Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir
2012: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2013: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2014: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2015: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2016: Martin Hermannsson og Gunnhildur Gunnarsdóttir
2017: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
2018: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
 
Oftast valin Körfuboltamaður ársins:*
12 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010, 2012, 2013, 2014, 2015)
11 Helena Sverrisdóttir (2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015)
4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993)
3 Martin Hermannsson (2016, 2017, 2018)
3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977)
2 Hildur Björg Kjartansdóttir (2017, 2018)
2 Jón Sigurðsson (1976, 1978)
2 Valur Ingimundarson (1984, 1988)
2 Guðmundur Bragason (1991, 1996)
2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998)
2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004)
 
*Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.


#korfubolti