10 des. 2018

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir kæru sem Tindastóls sendi inn vegna framkvæmdar á leiks Þórs Ak. og Tindastóls í 1. deild kvenna 13. nóvember s.l. Tindastóll krafðist þess að félaginu yrði dæmdur sigur í leiknum og til vara að leikurinn yrði spilaður á ný. Þór Ak. krafðist þess að öllum kröfum Tindastóls yrði hafnað.

Aga- og úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að úrslit leiksins skyldu standa og hafnaði því öllum kröfum Tindastóls. Nánar má lesa um niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar hér.