29 nóv. 2018Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið þá 12 leikmenn sem leika í kvöld gegn Belgíu kl. 19:45 í Laugardalshöllinni. Í ljós hefur komið að Haukur Helgi Pálsson er meiddur og þarf því að hvíla í kvöld.

Þeir leikmenn sem eru í æfingahóp og eru ekki í liðinu í kvöld eru þeir Collin Pryor, Stjörnunni, Kristinn Pálsson, Njarðvík og Dagur Kár Jónsson, Raiffeisen Flyers Wels í Austurríki.

📘Leikskráin fyrir leikinn í kvöld í Höllinni kl. 19.45.

Landslið karla er því þannig skipað í kvöld: 
# Leikmaður F. ár Hæð Staða Félag Landsleikir
0 Haukur Óskarsson 1991 194 F Haukar 2
3 Ægir Þór Steinarsson 1991 182 B Stjarnan 55
5 Gunnar Ólafsson 1993 192 F Keflavík 7
8 Hlynur Bæringsson 1982 200 M Stjarnan 122
9 Jón Arnór Stefánsson 1981 196 B KR 98
10 Elvar Már Friðriksson 1994 186 B Njarðvík 34
13 Hörður Axel Vilhjálmsson 1988 196 B Keflavík 74
19 Kristófer Acox 1993 198 F KR 36
21 Ólafur Ólafsson 1990 194 F Grindavík 26
23 Hjálmar Stefánsson 1996 199 F Haukar 4
33 Danero Thomas 1986 195 F Tindastóll 2
34 Tryggvi Snær Hlinason 1997 215 M Monbus Obradorio (ESP) 29

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfarar: Halldór Fannar Júlíusson og Jóhannes Már Marteinsson


#korfubolti #eurobasket2021