26 nóv. 2018KKÍ auglýsir miðaafhendingu til korthafa fyrir landsleik karla sem fram fer á fimmtudaginn kemur.

Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram en Ísland mætir Belgíu fimmtudaginn 29. nóvember kl. 19:45 í Laugardalshöllinni.

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram útgefnum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana sína rafrænt á netinu fram að leik með því að slá inn kennitölu sína (án bandstriks)

Handhafar appelsínugulra aðgöngukorta fyrir 1 nálgast miða hér: 1 miði: fyrir KKÍ-korthafa (appelsínugul kort) 
Handhafar blárra aðgöngukorta fyrir 2 nálgast miða hér: 2 miðar fyrir KKÍ-korthafa (blá kort)

EINNIG ER SKÝRT TEKIÐ FRAM AÐ ENGA MIÐA VERÐUR HÆGT AÐ NÁLGAST EFTIR AFHENDINGARDAGINN SÍMLEIÐIS, MEÐ TÖLVUPÓSTI EÐA ÖÐRUM SKILABOÐUM TIL STARFSMANNA SAMBANDSINS.

Almenn miðasala fer fram á TIX:is:
ÍSLAND-BELGÍA: https://tix.is/is/event/7178/island-belgia/


Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“


#korfubolti #eurobasket2021