2 nóv. 2018Í kvöld mætast liðin sem léku til úrslita í fyrra, KR og Tindastóll, í DHL-höllinni í Vesturbænum. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst kl. 20:00 í kvöld.  

Strax að leik loknum eða kl. 22:00 hefst svo Körfuboltakvöld þar sem umferðin í Domino's deildum karla og kvenna verður gerð upp með öllu því sem því fylgir.


🍕 Domino's deild karla í kvöld
🗓 Föstudagur 2. nóvember
🖥 Lifandi tölfræði á kki.is
⏰ 20:00
🏀 KR-Tindastóll ➡️📺Sýndur beint á netinu á Stöð 2 Sport

#korfubolti #dominosdeildin