31 okt. 2018

Um helgina síðastliðnu var haldið FIBA-stattnámskeið á vegum KKÍ og FIBA þar sem fulltrúi FIBA og Genius Sports, Oleksiy Nemenov, kom til landsins og hélt námskeið fyrir 12 þátttakendur. Hann er meðal annars umsjónarmaður LIGA ACB-deildarinnar á Spáni auka annara stórra deilda.

Alls luku 11 tölfræðiskrásetjarjar fræðslu á netinu fyrir upphaf námskeiðisins og stóðust svo próf í lokin.

Eftirtaldir aðilar eru því vottaðir „FIBA Licenced Statisticians“ og mega meðal annars starfa á landsleikjum á vegum FIBA. Þátttakendur voru ánægðir með námskeiðið og mun það án vafa nýtast klúbbunum þeirra og gera tölfræðina betri í deildinni okkar hér heima.

Anna Júlíusdóttir · Þór Þorlákshöfn
Ásgeir Einarsson · Haukar
Ásgeir Örn Sigurpálsson · Stjarnan
Elías Karl Guðmundsson · Stjarnan
Guðbjörg Hákonardóttir · Þór Akureyri
Helgi Hrafn Ólafsson · ÍR
Jón Svan Sverrisson · KKÍ / Ófélagsbundinn
Ólafur Bergur Ólafsson · Njarðvík
Rúnar Ingi Stefánsson · Tindastóll
Skúli Guðmundsson · Skallagrímur
Þorkell Stefánsson · Ófélagsbundinn

#korfubolti