14 okt. 2018
Framkvæmdastjóri FIBA Patrick Baumann er látinn. Hann varð bráðkvaddur 51 árs að aldri nótt. Patrick hefur um árabil verið í forystu FIBA og sem framkvæmdastjóri unnið ötullega að uppgangi körfuknattleiksins á heimsvísu en undir FIBA heyra álfusvæðin fimm. Að auki átti Patrick sæti í stjórn alþjóðlegu ólimpíunefndarinnar og var mikils metinn innan íþróttahreyfingarinnar.

Hannes S. Jónsson þekkti Patrick vel í gegnum sín störf fyrir stjórn FIBA Europe:

„Það var afar sorglegt að fá frétt snemma í morgun af fráfalli Patricks. Andlát hans er mikið sjokk fyrir körfuboltahreyfinguna alla og persónulega er mér mjög brugðið enda góður og hreinskiptinn vinur sem hefur kvatt okkur. Patrick hafði mikinn áhuga á Íslandi og íslenskum körfubolta og var hann hér síðast á Íslandi í vor með fjölskyldu sinni og er hugur minn og okkar hjá KKÍ hjá eiginkonu hans og börnum þeirra á þessum þungbæra tíma.

Patrick var ekki ekki bara mikils metinn innan körfuboltans heldur íþróttahreyfingarinnar allrar og var hann einn af helsu forystumönnum í alþjóðlega íþróttaheiminum.

Stjórn og starfsfólk KKÍ syrgja góðan vin í dag, guð blessi minningu Patricks Bauman." 


Frétt af fiba.com um andlát Patricks

#korfubolti