9 ágú. 2018

Síðustu sumur hefur KKÍ staðið fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp ungmenna. Úrvalshópurinn er undanfari yngri landsliða Ísland þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum fara yfir ýmis tækniatriði og stjórna stöðvaæfingum þar sem meðal annars verða æfð skottækni, sendingar, boltameðferð og sóknarhreyfingar.

 

Úrvalsbúðirnar í ár eru fyrir ungmenni fædd 2005, 2006 og 2007 og að venju er æft á tveimur helgum. Sú fyrri fór fram í lok maí og 18.-19. ágúst er komið að þeirri síðari.

Dagskráin sú sama og á fyrri helginni en staðsetning hjá stelpum verður í Smáranum að þessu sinni. Strákar verða aftur á Ásvöllum líkt og síðast.

Seinni helgin · 18.-19. ágúst · Staðsetningar seinni helgar í ágúst:

· Drengir verða DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði.

· Stúlkur verða í Smáranum í Kópavogi.

 

Yfirþjálfarar Úrvalsbúðana eru þau Ingi Þór Steinþórsson hjá drengjum og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá stúlkum.

 

Hægt er að sjá tíma á æfingum og nánari upplýsingar á: kki.is/urvalsbudir

#korfubolti