1 ágú. 2018

Föstudaginn 31. ágúst n.k. fer fram unglingaráðsfundur KKÍ og félaganna.

Þar gefst þeim aðilum sem reka barnastarf félaganna tækifæri til að koma og hitta fulltrúa KKÍ sem starfa að móta- og fræðslumálum.

Farið verður yfir skipulag vetrarins ásamt því að ný verkefni verða kynnt.

Búið er að senda út fundarboð í tölvupóst til aðildarfélaganna varðandi skráningu.