10 júl. 2018Landsmótið er sannkölluð íþróttaveisla sem fram fer á Sauðárkróki um næstu helgi 12. - 15. júlí 2018. Á mótinu er hægt að velja fleiri en 30 íþróttagreinar auk skemmtunar og fróðleiks. Fyrirkomulag mótsins er nýtt. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að kynnast nýjum íþróttagreinum, fá kennslu í þeim og taka fyrstu skrefin í nýrri hreyfingu. Þú setur saman þitt eigið Landsmót.

Allir 18 ára og eldri geta skráð sig til þáttöku en að auki verður margt í boði fyrir mótsgesti yngri en 18 ára. Landsmótið er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Samhliða mótinu fer Landsmót UMFÍ 50+ fram.

Keppt verður í 3 á 3 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki og Streetball á körfuboltavellinum við Árskóla.

Kynntu þér málið.