21 jún. 2018

Nýliðaval NBA-deildarinnar fer fram í kvöld og hefst það kl. 23.00 að íslenskum tíma. Nýliðavalið fer fram í Barclays íþróttahöllinni í Brooklyn í New York.

Tryggvi Hlinason, leikmaður Valencia á Spáni og íslenska landsliðsins, gefur kost á sér í nýliðavali NBA og það kemur í ljós í kvöld hvort hann verði valinn og verði þar með nýjasti NBA leikmaður Íslands.

Síðasti íslenski leikmaðurinn til að vera valinn í nýliðavali NBA var Pétur Guðmundsson en hann var valinn nr. 61 í þriðju umferð nýliðavalsins 1981 en það fór fram 9. júní það ár í New York. Jón Arnór Stefánsson sem var á mála hjá Dallas Mavericks var ekki valinn á sínum tíma heldur samdi beint við liðið.