12 jún. 2018Israel Martin, þjálfari U20 karla, og aðstoðarþjálfari hans, Baldur Þór Ragnarsson, hafa valið sitt 12 manna lið U20 ára karla fyrir sumarið 2018.

Íslenska liðið leikur í annað sinn í sögunni í A-deild U20 liða hjá körlunum. Mótið fer fram í umsjón Þýskalands í borginni Chemnitz dagana 14.-22. júlí og mætir þar í riðlakepninni í D-riðli liðum Ítalíu, Svíþjóðar og Serbíu. Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti.

Liðið hefur verið við æfingar að undanförnu og undirbýr sig að kappi fyrir þetta krefjandi mót.

Liðið er skipa eftirtöldum leikmönnum:


U20 ára lið karla
Andrés Ísak Hlynsson KR
Árni Elmar Hrafnsson Breiðablik
Arnór Hermannsson KR
Bjarni Guðmann Jónsson Skallagrímur
Eyjólfur Ásberg Halldórsson Skallagrímur
Hákon Örn Hjálmarsson ÍR
Ingvi Þór Guðmundsson Grindavík
Jón Arnór Sverrisson Keflavík
Sigurkal Róbert Jóhannesson ÍR
Snjólfur Marel Stefánsson Njarðvík
Sveinbjörn Jóhannesson Breiðablik
Þórir G. Þorbjarnarson Nebraska, USA

Þjálfari: Israel Martin
Aðstoðarþjálfari: Baldur Þór Ragnarsson