29 maí 2018

Næstu helgi fer fram veglegt þriggja daga þjálfaranámskeið sem haldið verður á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Námskeiðið er haldið af KKÍ og FIBA Europe.

Aðalfyrirlesari þess verður Bob McKillop þjálfari karlaliðs Davidson háskólans í Norður-Karolínu en með skólanum leikur einmitt Jón Axel Guðmundsson um þessar mundir. Meðal helstu leikmanna sem Bob hefur þjálfað á sínum 17. árum með skólann má nefna Stephen Curry, leikmann Golden State Warriors í NBA-deildinni sem í nótt trygðu sér sæti í úrslitum NBA-úrslitakeppninnar þar sem þeir mæta Cleveland Cavaliers.

Skráning fer fram á kki.is hérna

Dagskrá helgarinnar:

Föstudagur 1. júní 

17:00-17:10    Ágúst Björgvinsson (KKÍ) – Opnar námskeið
17:10-18:30    Bob McKillop – þjálfunar hugmyndafræði 
18:30-19:00    Matarhlé
19:00-20:20    Dr. Hafrún Kristjánsdóttir – Sjálfstraust leikmanna 

Laugadagur 2. júní
09:00-10:20    Sveinn Þorgeirsson aðjúnkt HR – Líkamleg þjálfun og próf 
10:30-11:50    Bob McKillop – Sækja í opin svæði 
11:50-12:30    Matarhlé
12:30-13:50    Bob McKillop – Sóknarleikur liðs
14:00-15:20    Friðrik Ingi Rúnarsson – Hraður leikur

Sunnudagur 3. júní
09:00-10:20    Borce Illievski – „Switching defence and minimize the miss matches“
10:30-11:50    Bob McKillop – Liðsvörn 
11:50-12:30    Matarhlé
12:30-13:50    Ívar Ásgrímsson – A-landsliðs þjálfari kvenna
14:00-15:20    Frá augum leikmanna - Helena Sverrisdóttir, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson
15:30-16:00    KKÍ 3.a próf

#korfubolti