7 maí 2018Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í Stúlknaflokki í DHL-höllinni á fyrri úrslita helgi yngri flokka 2018. 

Það var lið Keflavíkur sem stóð uppi sem íslandsmeistari 2018.

Keflavík lék í undanúrslitunum gegn Ármanni/Val og í hinum undanúrslitaleiknum voru það Haukar sem höfðu betur gegn Njarðvík. Í úrslitaleiknum var það svo Keflavík sem vann Hauka en lokatölur urðu 53:74 fyrir Keflavík.

Þjálfari liðsins Marín Rós Karlsdóttir.

Elsa Albertsdóttir var valin besti leikmaður úrslitaleiksins. Hún endaði með 6 stig, 16 fráköst, 7 stolna bolta og 3 stoðsendingar.

KKÍ óskar Keflavík til hamingju með titilinn!

#korfubolti