7 maí 2018Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í 9. flokki drengja í DHL-höllinni á fyrri úrslita helgi yngri flokka 2018. 

Það var lið Fjölnis sem stóð uppi sem íslandsmeistari 2018.

Fjölnir lék í undanúrslitunum gegn Breiðablik og í hinum undanúrslitaleiknum var það KR sem hafði betur gegn Stjörnunni. Í úrslitaleiknum var það svo Fjölnir sem vann KR en lokatölur urðu leiksins urðu 48:63 fyrir Fjölni.

Þjálfari liðsins er Birgir Guðfinnsson.

Ólafur Ingi Styrmisson var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins en hann var með 8 stig, 23 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta.

KKÍ óskar Fjölni til hamingju með titilinn!

#korfubolti