2 maí 2018ÍR varð um helgina íslandsmeistari í minnibolta 10 ára stúlkna eftir úrslitamótið sem haldið var í Smáranum. Í A-riðli í lokaumferðinni léku ásamt ÍR lið KR, Keflavík, ÍR-b, Vestri og Njarðvík.

Leikar fóru þannig að lið ÍR stóð uppi sem sigurvegari og voru þær því krýndar íslandsmeistarar 2018.
Þjálfari ÍR er Brynjar Karl Sigurðsson.

KKÍ óskar ÍR til hamingju!

#korfubolti