30 apr. 2018Í kvöld er komið að stóru stundinni þegar oddaleikur Domino's deildar kvenna fer fram milli Hauka og Vals í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum.

Staðan er 2-2 og því verður leikið til þrautar og annað liðið krýnt íslandsmeistari 2018 að leikn loknum. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Körfuboltakvöld verður með uppgjör að leik loknum í beinni útsendingu. Þá verður lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is. 

Sagan:
Haukar eru að leika í 7. sinn í lokaúrslitum um íslandsmeistaratitilinn í efstu deild og hafa hampað honum þrisvar sinnum, síðast árið 2009. Valur er að leika í þriðja sinn í úrslitakeppninni og í fyrsta sinn í sjálfum lokaúrslitunum.

-> Saga úrslitakeppni kvenna
-> Meistaratitlar kvenna


🏆 Hvort verða það Haukar eða Valur sem lyfta bikarnum á loft í kvöld?

🍕 Domino's deild kvenna
➡️ ODDALEIKUR!
🎪 DB Schenkerhöllin, Ásvöllum
⏰ 19:15

🏀 HAUKAR - VALUR 📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport

🖥 LIVEstatt á www.kki.is 

#korfubolti #dominos365