30 apr. 2018Keflavík varð í gær íslandsmeistari í 8. flokki stúlkna eftir úrslitamótið í flokknum sem haldið var í Grindavík. Í riðlinum léku Keflavík, Grindavík, Haukar, Þór Þ. og Þór Ak. og fóru leikar þannig að Grindavík og Keflavík léku hreinan úrslitaleik um titilinn í lokaleik mótsins.

Leiknum lauk með sigri Keflavíkur 34:24 og þar með urðu þær íslandsmeistarar 2018. Grindavík hlaut því silfur og Haukar urðu í þriðja sæti og þar á eftir Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.

Þjálfari Keflavíkur er Kristjana Eir Jónsdóttir.

KKÍ óskar Keflavík til hamingju!

#korfubolti