28 apr. 2018Í kvöld kl. 20:00 mætast KR og Tindastóll í fjórða leiknum í lokaúrslitum Domino's deildar karla. Leikurinn fer fram í DHL-höllinni í Vesturbænum og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og strax eftir leik verður Körfuboltakvöld í beinni.

Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir KR en þrjá sigra þarf til að verða íslandsmeistarar 2018. Verði oddaleikur fer hann fram á þriðjudaginn, 1. maí á Sauðárkróki.

Handhafar KKÍ-aðgöngukorta athugið: Í gær var auglýst afhending miða til korthafa fyrirfram því KKÍ kort verða ekki tekin gild á leikdegi við hurð. Eingöngu verður tekið við miðum og miðar seldir á meðan húsrúm leyfir.

Allt um dagskrá úrslitanna, úrslit leikja og tölfræði og stöðu einvíga má sjá hérna á kki.is/urslitakeppni.
-> Saga úrslitakeppni karla
-> Meistartitlar karla


🍕 Domino's deild karla
➡️ Hvað gerist í kvöld? Er það leikur nr. 5️⃣ eða 🏆 á loft?

🏆 ÚRSLIT · Leikur 4
🎪 DHL-höllin, Vesturbæ
⏰ 20:00

🏀 KR (2) - TINDASTÓLL (1) 📺Sýndur beint á @St2Sport

🖥 LIVEstatt á http://kki.is 

#korfubolti #dominos365