27 apr. 2018

Njarðvík-b eru íslandsmeistarar B-liða árið 2018 en úrslitaleikur B-liða fór fram í gær í Njarðvík. Það voru Njarðvík-b og Stjarnan-b sem léku til úrslita en liðin voru tvö efstu B-liða sem léku í 2. deild í vetur og urðu lokatölur 82:65 Njarðvík-b í vil. 

Lið Njarðvíkur var því krýnt íslandsmeistari í leikslok en með liðinu leika fjölmargir fyrrverandi landsliðsmenn og reynsluboltar úr efstu deild.

KKÍ óskar Njarðvík til hamingju með titilinn!

#korfubolti