21 apr. 2018

Í dag er komið að öðrum leik Vals og Hauka í lokaúrslitum Domino's deild kvenna og fer leikur dagsins fram í Valshöllinni að Hlíðarenda. Haukar unnu fyrsta leik liðanna á fimmtudaginn var og eru því 1-0 yfir í einvíginu. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu lyftir Íslandsmeistari 2018 í Domino's deildinni.

Leikurinn í dag verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hann kl. 16:00.

-> Saga úrslitakeppni kvenna
-> Meistaratitlar kvenna

Leikdagar í úrslitum kvenna verða sem hér segir:

Leikur 1 · 19. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 2 · 21. apríl kl. 16:00 · Valur-Haukar
Leikur 3 · 24. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 4 · 27. apríl kl. 19:15 · Valur-Haukar  (ef þarf)
Leikur 5 · 30. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur  (ef þarf)

#korfubolti #dominos365