20 apr. 2018Í kvöld er komið að því að lokaúrslit Domino's deildar karla hefjist þegar Tindastóll og KR mætast í sínum fyrsta leik í úrslitunum á Sauðárkróki. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Lifandi tölfræði verður á sínum stað á kki.is. 
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki lyftir verður krýnt Íslandsmeistari 2018 í Domino's deildinni.

Sömu lið mættust einnig í úrslitunum 2015 þar sem KR hafði betur og þá mættust liðin einnig í Maltbikar úrslitaleiknum í janúar þar sem Tindastóll hafði sigur og því ljóst að framundan verður hörku barátta um titilinn í ár.
Úrslitarimman hefst á Sauðárkróki, þar sem Tindastóll á heimavallarréttinn í seríunni, og verður fyrsti leikurinn á föstudaginn kemur kl. 19:15. 

Sagan:

KR hefur 16. sinnum orðið íslandsmeistari (9. sinnum frá árinu 1984 þegar núverandi úrslitakeppni var tekinn upp) og hafa unnið titilinn síðustu fjögur ár. Tindastóll hefur einu sinni leiki til úrslita um titilinn eins og áður segir, árið 2015, en hafa ekki hampað titlinum.

-> Saga úrslitakeppni karla
-> Meistartitlar karla

Leikdagar í úrslitum karla verða sem hér segir:

Leikur 1 · 20. apríl kl. 19:15 · Tindastóll-KR
Leikur 2 · 22. apríl kl. 19:15 · KR-Tindastóll
Leikur 3 · 25. apríl kl. 19:15 · Tindastóll-KR
Leikur 4 · 28. apríl kl. 20:00 · KR-Tindastóll (ef þarf)
Leikur 5 ·    1. maí kl. 19:15 · Tindastóll-KR (ef þarf)

#korfubolti