11 apr. 2018Í kvöld fer fram þriðji leikur Hamars og Breiðabliks í lokaúrslitum 1. deildar karla en staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Breiðablik. Þrjá sigurleiki þarf til að tryggja sér sigur í einvíginu og þar með sæti í Domino's deildinni að ári liðnu.

Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í Hveragerði.

Lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is.

🏆 1. DEILD KARLA · ÚRSLIT
➡️ Leikur 3
🎪 Hveragerði
🗓 Mið. 11. apríl
⏰ 19:15

🏀 HAMAR (0) - BREIÐABLIK (2)

#korfubolti