28 mar. 2018Haukar og Keflavík leika hreinan úrslitaleik í kvöld um laust sæti í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla en liðin hafa hvort um sig unnið tvo leiki og því þarf hreinan úrslitaleik í kvöld til að skera úr um sigurvegara einvígi liðanna. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði og má búast við fjölmenni á leiknum og því vert að benda áhorfendum á að mæta tímanlega til að forðast raðir. 

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Undanúrslitin:
Að leik loknum ræðst það hvaða lið mætast í undanúrslitunum. Það lið sem kemst áfram og var hæðst í töflunni að deildarkeppninni lokinni fær alltaf neðsta liðið sem kemst áfram í undanúrslitin. Því verður framhaldið svona: 

Ef Haukar vinna: Haukar-KR og ÍR-Tindastóll
Ef Keflavík vinnur: ÍR-Keflavík og Tindastóll-KR

🍕 Domino's deild karla · 8-liða úrslit
➡️ ODDALEIKUR!
🗓 Miðvikudaginn 28. mars
🎪 DB Schenkerhöllin, Ásvöllum

⏰ 19:15
🏀 HAUKAR (2)-KEFLAVÍK(2)
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

🖥 LIVEstatt á kki.is

#korfubolti #dominos365