26 mar. 2018Um helgina lauk deildarkeppninni í Domino's deild kvenna 2017-2018 og ljóst hvaða lið leika til úrslita í ár. Fjögur lið fara í úrslit og leika heima og að heiman þar til annað liðið hefur unnið þrjá leiki og kemst þar með í lokaúrslitin. 

Haukar urðu deildarmeistarar, Keflavík varð í öðru sæti, Valur í því þriðja og Skallagrímur tók fjórða og síðasta sætið í úrslitunum í ár. 

Það verða því Haukar og Skallagrímur sem mætast og Keflavík og Valur.

Á morgun þriðjudag verður haldinn blaðamannfundur fyrir úrslitakeppnina í Domino's deild kvenna sem hefst svo strax eftir páska eða þann 2. apríl