22 mar. 20188-liða úrslit Domino's deildar karla halda áfram í kvöld og nú er komið að leik þrjú milli KR og Njarðvíkur og ÍR og Stjörnunnar.

Leikið verður í DHL-höllinni í Vesturbænum og í Hertz-hellinum Seljaskóla í kvöld og verður sýnt frá báðum leikjum kvöldsins. 

Stöð 2 Sport sýnir beint leik ÍR og Stjörnunnar, þar sem staðan er 1-1 og KRTV sýnir á netinu leik KR og Njarðvíkur þar sem staðan er 2-0 fyrir KR. 

Þau lið sem fyrr vinna þrjá leiki fara áfram í undanúrslitin í ár.

🍕Domino's deild karla
➡️8-liða úrslit
⏰19:15
📊 Leikir 3

🏀ÍR-STJARNAN  ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀KR-NJARÐVÍK ➡️📺Netútsending á KRTV.is

#korfubolti #dominos365