21 mar. 2018

Í kvöld fara fram fjórir leikir í Domino's deild kvenna kl. 19:15 en þetta er næst síðasta umferð deildarkeppninnar og það er hörð baraátta um annað sætið í deildinni sem og fjórða og síðasta sætið sem gefur sæti í úrslitakeppninni.

Stöð 2 Sport verður í Borgarnesi í kvöld og sýnir beint frá slag Skallagríms og Stjörnunnar en liðin eru í 4. og 5. sæti deildarinnar og eru að keppa um fjórða sætið sín á milli í síðustu tveim umferðunum.

Domino's deild kvenna í kvöld:
Valur-Snæfell
Keflavík-Haukar
Breiðablik-Njarðvík
Skallagrímur-Stjarnan · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

#korfubolti #dominos365