17 mar. 2018
Lið Hauka eru deildarmeistarar í Domino’s deild kvenna tímabilið 2017-2018 en þær tryggðu sér titilinn nú í vikunni þegar þrjár umferðir eru eftir að deildarkeppninni. Lið Hauka mun fá verðlaun sín afhent í dag að leik loknum á sínum heimavelli.
 
Það verður Guðbjörg Elíasdóttir Norðfjörð, varaformaður KKÍ, sem mun afhenda liðinu verðlaunin í dag.
 
KKÍ óskar Haukum til hamingju með titilinn!
Domino's deild kvenna í dag · 26. umferð
Allir leikirnir hefjast kl. 16:30

Haukar-Breiðablik í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum
Njarðvík-Valur í Ljónagryfjunni
Stjarnan-Snæfell í Ásgarði í Garðabæ

#korfubolti