17 mar. 2018Í dag er komið að fyrsta leik KR og Grindavíkur í úrslitakeppni 1. deildar kvenna. Liðin mætast í DHL-höllinni í Vesturbænum kl. 16:30.

Leikurinn verður í lifandi tölfræðilýsingu á kki.is.

Efstu fjögur liðin leika öll í úrslitakeppni um eitt laust sæti í Domino's deildinni að ári liðnu. Liðin sem leika í úrslitakeppninni í ár eru lið KR sem urðu deildarmeistarar, lið Fjölnis sem hafnaði í 2. sæti, Þór Akureyri sem varð í 3. sæti og Grindavík sem varð í 4. sæti. 

Fyrirkomulag úrslitakeppni 1. deilda
Þau lið sem fyrr vinna þrjá leiki í undanúrslitum, þar sem leikið er heima og að heiman til skiptis, komast í lokaúrslitin þar sem sami háttur er á, vinna þarf þrjá leiki til að vinna viðureignina og þar með sæti í Úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

#korfubolti