15 mar. 2018

Í kvöld er komið að stóru stundinni í Domino's deild karla þegar úrslitakeppnin 2018 hefst með fyrstu leikjum 8-liða úrslitanna. Tveir leikir fara fram í kvöld og eru það fyrstu leikirnir í viðureignum ÍR og Stjörnunnar og KR og Njarðvíkur. 

ÍR lenti í 2. sæti í deildinni og fær því lið Stjörnunnar sem hafnaði í 7. sæti. KR lenti í 4. sæti og fær því liði Njarðvíkur í 5. sætinu. 

Stöð 2 Sport verður í Hertz-hellinum í Seljaskóla og sýnir beint frá leik ÍR og Stjörnunnar. KRTV mun sýna beint á netinu leik KR og Njarðvíkur í DHL-höllinni.

Á öllum stigum úrslitakeppninnar er leikið er heima og að heiman til skiptis. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í 8-liða úrslitunum fer í undanúrslitin í ár.

Leikjaplan allra viðureignanna, úrslit og fleira má sjá á síðu úrslitakeppninnar hér á kki.is.

8-liða úrslit karla:
🍕Domino's deild karla
➡️Leikir 1
⏰19:15
🏀ÍR-STARNAN · Sýndur b
eint á Stöð 2 Sport
🏀KR-NJARÐVÍK · Netútsending á krtv.is

#korfubolti #dominos365