17 jan. 2018

Í kvöld er komið að leikjum í Domino's deild kvenna eftir Maltbikarúrslitin um helgina. Heil umferð fer fram kl. 19:15 með fjórum leikjum á dagskránni. 

Haukar taka á móti Njarðvík í DB Schenkerhöllinni í Hafnarfirði, Skallgrímur fær Snæfell í heimsókn í Borgarnesi, Bikarmeistarar Keflavíkur mæta efsta liði deildarinnar, Val, í TM höllinni í Keflavík og nágrannaliðin Stjarnan og Breiðablik mætast í Ásgarði í Garðabæ og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Leikir kvöldsins kl. 19:15
🏀Haukar-Njarðvík
🏀Skallagrímur-Snæfell
🏀Keflavík-Valur
🏀Stjarnan-Breiðablik · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

#korfubolti