14 jan. 2018

Seinni sjónvarpsleikur dagsins á RÚV var leikur ÍR og Breiðabliks í unglingaflokki karla.

Þessi leikur stóð undir þeim væntingum sem til hans voru bundnar. Leikurinn réðst í lokin en liðin skiptust á að leiða allan tímann. Liðin skiptust á að skora tvær til þrjár körfur í röð og spennan var í hámarki allan tímann. Í lokin voru það þó Blikar sem reyndust sterkari og unnu þeir 80-84.

Snorri Vignisson var valinn besti maður leiksins en hann var með 23 stig, 12 fráköst, tvær stoðsendingar og fjóra stolna bolta.

Til hamingju Breiðablik.