11 jan. 2018Í dag er komið að undanúrslitum kvenna í Maltbikarnum 2018 en í gær léku karlaliðin í undanúrslitunum. Leikir dagsins fara fram í Laugardalshöllinni og er miðasala er hjá félögunum til hádegis og svo á tix.is eftir það.

Fyrri leikur dagsins er leikur Skallagríms og Njarðvíkur sem mætast kl. 17:00 og svo þar á eftir kl. 20:00 mætast Keflavík og Snæfell. Sigurvegararnir mætast svo í úrslitaleik Maltbikarsins á laugardaginn kemur kl. 16:30. 

Beint á RÚV
Báðir leikir kvöldsins verða í beinni á RÚV kl. 17 og RÚV2 kl. 20:00, sem og úrslitaleikurinn á laugardaginn. 

Lifandi tölfræði verður frá báðum leikjunum að venju á sínum stað á kki.is.

🏆Maltbikarinn · 4-liða kvenna
➡️Laugardalshöll
🗓Fim. 11 jan.

⏰ 17:00
🏀 SKALLAGRÍMUR-NJARÐVÍK · Beint á RÚV

⏰ 20:00
🏀 KEFLAVÍK-SNÆFELL · Beint á RÚV2

#maltbikarinn #korfubolti