13 des. 2017

Körfuknattleikssamband Íslands hvetur forsvarsmenn, þjálfara, iðkendur, foreldra og forráðamenn að kynna sér vel eftirfarandi fræðsluefni gegn kynferðislegu ofbeldi í íþróttum og viðbragðsáætlun á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).

 

ÍSÍ sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu í vikunni:

Í ljósi umræðunnar um kynferðislegt áreiti og ofbeldi og #METOO  samfélagsmiðlabyltingarinnar er ekki úr vegi að benda félögum á það efni sem nú þegar er til hjá ÍSÍ um þetta málefni eða getur hjálpað til ef málefni af þessu tagi kemur upp. Það er félögum og öðrum sambandsaðilum sjálfsagt að nýta allt það efni sem er til staðar. Í þessu sambandi er bent á:

 

 

Það þarf varla að taka það fram að besta forvörnin felst í því að fræða, eiga góðar siðareglur og að opið og jákvætt andrúmsloft ríki í félaginu. Þegar nýr þjálfari hefur störf innan félagsins er æskilegt að fá meðmæli frá félögum sem hann hefur þjálfað hjá og fara yfir siðareglur félagsins. Síðast en ekki síst skal benda á að ef grunur leikur á kynferðislegu ofbeldi eða einhverjar spurningar vakna skal hafa samband við Barnavernd í því sveitarfélagi þar sem brotið er framið ef um barn er að ræða og tilkynna í nafni félagsins. Ef um fullorðinn einstakling er að ræða skal hringt í lögreglu í síma 112.