5 sep. 2017

Í dag er komið að næsta leik okkar á EM, EuroBasket 2017, og eru mótherjar okkar Slóvenar. Slóveníu hefur gengið vel hingaði til og eru efstir í riðlinum eftir þrjá leiki og eru taplausir, með sigra gegn Póllandi, Finnlandi og Grikklandi, og því ljóst að þeir eru eitt sterkasta liðið í A-riðli í Helsinki.

Leikurinn hefst kl. 13:45 í Helsinki en kl. 10:45 á Íslandi og er í beinni á RÚV. Því miður er það svo að útprentaðir miðar frá mótshöldurum segja leikinn hefjast kl. 16:30 en hann er kl. 13:45 og því allir beðnir um að láta orðið berast svo enginn missi af leiknum í dag úti í Finnlandi.

Ein helsta stjarna Slóveníu, Goran Dragic, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, leiðir mótið (yfir alla riðlana fjóra) með flest stig að meðaltali (26.3 í leik) og því verður verðugt verkefni okkar stráka að stoppa hann í dag.

Stuðsvæðið, eða „Fan-Zone“ verður aðeins opið frá kl. 15:00 í dag. Hist verður á stað rétt gjá og koma upplýsingar um það inn á facebook KKÍ og Stuðningsmanna grúppuna.

Kl. 13:45 - Ísland - Slóvenía 

Áfram Ísland!

#korfubolti