14 ágú. 2017

Íslensku strákarnir í U16 gáfu frábæru liði Grikkja heldur betur leik í dag á Evrópumótinu sem fram fer þessa dagana í Sofia í Búlgaríu. Ísland tók frumkvæðið snemma leiks og leiddu strákarnir í hálfleik 43-37. Grikkir komu hins vegar sterkir út í þriðja leikhlutann og nýttu óspart hæðarmun liðanna, en meðalhæð Grikkneska hópsins á mótinu er tæpum 10 sentimetrum hærri en þess íslenska. Íslensku strákarnir neituðu hins vegar að gefast upp og minnkuðu muninn í 70-71 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Nær komust strákarnir ekki og niðurstaðan 76-85 tap í hörku leik.

Strákarnir börðust frábærlega allan leikinn, en snemma varð ljóst að villuvandræði Íslands yrðu nokkur. Á endanum missti liðið 3 leikmenn útaf með 5 villur á meðan að Grikkirnir fengu færri villur sem dreifðust betur. Tölfræði leiksins má sjá hér og upptöku af leiknum er að finna á YouTube síðu FIBA.

Staðan í riðlinum:

Lið Leikir Sigrar  Töp
Grikkland 4 4 0
Belgía 4 3 1
Ísland 4 2 2
Hvíta Rússland 4 2 2
Sviss 4 1 3
Rúmenía 4 0 4

Íslenska liðið á þrátt fyrir tap í síðustu tveimur leikjum enn möguleika á að enda í öðru sæti riðilsins og komast þar með í 8 liða úrslit. Ísland mætir Belgíu á morgun kl 10:45 á íslenskum tíma og sigri Ísland og Hvíta Rússland leiki sína á morgun enda Ísland, Hvíta Rússland og Belgía jöfn að stigum. Þá munu nnbyrgðis viðureignir liðanna ráða sætaniðurröðun. Belgía sigraði Hvíta Rússland fyrr í dag með 30 stiga mun og því ljóst að Ísland þarf að sigra Belga með að lágmarki 16 stiga mun til að ná öðru sæti riðilsins.

Leikurinn verður í beinni útsendingu hér kl 10:45.