11 júl. 2017

Okkar  strákar byrjuðu mjög vel og náðu forystu í 1. leikhluta en Grikkirnir náðu að jafna áður en honum lauk 16-16.  Leikurinn hélst jafn fyrstu 3 mínúturnar í 2. leikhluta en þá náðu Grikkirnir forystu. 
Staðan 29-38 í  hálfleik.
Í upphafi seinni hálfleiks gekk okkur illa að passa boltann og munurinn allt í einu kominn í 18 stig, 30-48.  Fór mest í 19 stiga mun en staðan eftir 3 leikhluta 44-60. 
I 4. leikhluta var munurinn mestur 16 stig, en við komum muninum niður í 10 stig þegar 4 mínútur voru eftir en nær komumst við ekki.
Lokastaðan 54-71.
Pössuðum boltann betur en gegn Spáni enda eins gott þar sem Grikkirnir eru með mjög sterkt lið.  Stefnum á að bæta okkur enn frekar gegn Ítölum.