10 júl. 2017

U20 ára lið karla í ásamt fararteymi mætti til Chania á Krít á laugardagkvöldið. Fyrsti leikur liðsins í lokamóti A-deild EM verður á næsta laugardag gegn Frakklandi. Fyrir EM tekur liðið þátt í sterku æfingarmóti ásamt Ítalíu, Spáni og Grikklandi.


Fyrsti leikurinn á æfingarmótinu verður í dag kl. 16:00 að íslenskum tíma þegar strákarnir mæta Spánverjum. Á morgun mæta þeir Grikkjum og á miðvikudag Ítalíu. Hægt verður að horfa á leikina á Youtube.


Hópurinn er þannig skipaður:
Kári Jónsson - Drexel, USA

Halldór Garðar Hermannson - Þór Þorlákshöfn

Arnór Hermannsson - KR

Kristinn Pálsson - Marist, USA

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson - KR

Eyjólfur Ásberg Halldórsson - Skallagrímur

Snjólfur Stefánsson - Njarðvík

Snorri Vignisson - Breiðablik

Ingvi Þór Guðmundsson - Grindavík

Breki Gylfason - Haukar

Sæþór Elmar Kristjánsson - ÍR

Tryggvi Snær Hlinason - Þór Akureyri

Þjálfari: Finnur Freyr Stefánsson
Aðstoðar-og styrktarþjálfari: Baldur Þór Ragnarsson

Aðstoðarþjálfari: Einar Árni Jóhannsson
Sjúkr
aþjálfarar: Hjörtur S.Ragnarsson og Bjartmar Birnir

Fararstjórar: Eyjólfur Þór Guðlaugsson og Sigrún Jónsdóttir

FIBA dómari raðað af FIBA: Sigmundur Már Herbertsson