30 jún. 2017

🇮🇸 Ísland · 🇪🇪 Eistland · 30. júní

Lokaleikdagurinn á NM er runninn upp og verða andstæðingar dagsins lið Eistlands. Fyrir leiki dagsins eiga U18 ára og U16 ára lið stúlkna eiga bæði möguleika á bronsi með sigri í dag og þá á U16 ára lið drengja framundan hreinann úrslitaleik um silfrið í sínum flokki. U18 ára lið drengja á ekki möguleika á verðlaunum í ár.

Þátttökuþjóðirnar á NM eru Danmörk, Eistland, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð.


Leikir dagsins: (ísl. tími):

10:45 U18 stúlkna

12:45 U18 drengja

12:45 U16 drengja

13:00 U16 stúlkna

 

Lifandi tölfræði:

Allir leikir mótsins verða í lifandi tölfræði á www.basket.fi.

 

Beinar netútsendingar:

Finnska sambandið sendir beint út frá öllum völlunum á YouTube-rás sinni: basketfinland.

https://www.youtube.com/user/basketfinland

 
#korfubolti